selmuskinkublogg

selma sigurðardóttir

11.07.2007 00:39:52 / selm

langtsíðansíðast

síðan ég bloggaði síðast er ég

 
  • búin að fara til london og svíðþjóðar sem var bara snilld
  • búin að vera sveitt í prófum
  • búin að ÚTSKRIFAST:)
  • og halda útskriftarsýningu
  • búin að fá vinnu á leikskólanum hólmasól...skemmtilegasta vinna sem ég hef verið í! og er að skúra þar líka sem er ekki allveg jafn skemmtilegt.
  • búin að keppa frekar oft og tapað oftar en unnið því miður:(
  • búin að vera fjallkonan á 17. júní...það var spes en pínu gaman
  • ekki enn byrjuð að læra á bíl, slöppp!
  • búin að fá súper mikinn áhuga á dýrum...hangi öll kvöld inná dýraland.is og skoða hunda og ketti
  • búin að ákveða að fara til útlanda í haust í svona 2 mánuði. vandamálið er bara að ég get ekki ákveðið hvert ég á að fara
  • búin að vinna eitt kvöld á indverskum stað sem siggi er með...og þar varð ég ástfangin af indverskum dreng sem heitir navanite. búin að passa hann tvisvar í smástund og er að pæla í að stela honum.
  • ekki búin að setja inn neitt af myndum...á samt hellling: kanarí,portó, london,svíþjóð, sýning,útskrift,útilega,hríseyjarferðir og fleira skemmtilegt. set þetta inn við gott tækifæri.
 

en það eru örugglega allir búnir að gleyma því að ég sé með blogg svo enginn á eftir að lesa þetta.....haha en mér er allveg sama.

 

-selma


» 16 hafa sagt sína skoðun

11.04.2007 15:47:31 / selm

ökumaðurinn selma

Ákvað að koma með smá blogg.

Búin að borða yfir mig af páskaeggjum, fékk frá pabba, olla og vinnunni og er búin með þau öll:/ og ég held ég sé að fá bumser af öllu þessu súkkulaði.

fór ekki á Björk og Hot chip, mér til mikillar óánægju...langaði svo mikið:(

olli missti nöglina af stóru tánni, það var mjög fyndið en samt frekar viðbjóðslegt, blá tá með enga nögl haha freak.

Fór á killer hlaupaæfingu í kjarna í gær, það var sko rosalegt....fór svo með elvu, ingu og olla á þelamörk á eftir. Það var bara næs að slappa af eftir erfiðið.

Auður og harpa voru svo sætar í sér að bjóða mér í mat um kvöldið. Þær gerðu heimsins besta pasta. Það var svo gaman að hitta þær, við skoðuðum eldgamlar myndir og borðuðum nammi og ég missti mig yfir sumum myndunum og öskraði úr hlátri. Vá hvað maður var kúl í 7. bekk.

Ég veit ekki hvort maður eigi að vera að segja frá þessu....en ég keyrði heim frá auði!! Kom sjálfri mér mjög á óvart og settist undir stýri á bílnum hennar hörpu. Bakkaði í fyrsta skipti og keyrði bíl í 3. skiptið á ævinni. Ég var að meika það!! Ég var pínu stressuð sko en var svo bara ógeðslega góð, þó ég hafi nokkrum sinnum bremsað of harkalega og næstum því keyrt á krakka. En það var svo gaman að keyra að ég er að pæla að fara að taka bílpróf bráðum. Ætli ég fari ekki í ökukennslu í sumar, þó ég þurfi þess varla því harpa og auður voru svo góðir kennarar;)
eftir bíltúrinn góða fór ég til mömmu að hjálpa henni, því hún var veik og sjöfn með gullfoss og kolfinna með geysi. Það var ekkert spes sko.

Svo byrjaði skólinn í dag eftir páskafríið og ég afrekaði það að sofna tvisvar. Gott selma.

Svo er ég að fara til london og svíþjóðar eftir 10 daga:D reyndar ekki búin að láta dragga þjálfara vita, en það reddast...

Jæja er að fara að læra undir sálfræðipróf.

-selma.

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

24.03.2007 04:22:43 / selm

portúgal here i come:)

get ekki sofnað....var að klára að pakka niður í tösku.
var á deddara hlaupaæfingu áðan, allveg svaðaleg! fór svo niðrá átak í plokk og lit til að vera sæt og fín í útlöndum:) svo fór ég til mömmu og svo út að borða með olla mínum:*
svo komu ausa og harpa sætu jussurnar mínar til mín:*
bæði mamma og pabbi geðveikt góð og gáfu mér monnís fyrir útlöndin, fékk 10+7 þúsund:D
þarf virkilega að fara að sofa, mæting upp í hamar 07:45....keyrt beint á flugvöllinn og svo út.
það verður geggjað, er allveg viss um það og við komumst örugglega í mjög gott form að vera að æfa 2 á dag í viku.

bið að heilsa ykkur, selma.


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.03.2007 19:04:27 / selm

akievveika

Ekki mikið að frétta...bara búin að vera slöpp heima undanfarna daga.

Ekkert gaman, alltaf að læra samt næ ég aldei að klára allt lærið fyrir vikuna.

Á föstudaginn fór ég í 2 tíma í skólann og svaf svo helling. Kvöldið fór í pizzu, x factor og lærdóm. Þetta var semsagt annað föstudagskvöldið mitt í röð sem ég var heima að læra...hversu sad er það:/  Það var árshátíð í skólanum og líka í vinnunni, langaði svolítið að fara allavega á árshátíð pennans sem var haldin fyrir sunnan á hótel sögu. Rosa fínn matur og ball og gist á hótel sögu...olli fór á vma árshátíðarballið og fannst ekki mjög gaman þannig ég var víst ekki að missa af miklu þar.

Á laugardaginn svaf ég lengi og fór svo í brynju og fékk mér bragðaref og fór svo aftur heim undir sæng. Svo ákvað ég að hressa mig aðeins við og fór í ljós með olla þegar hann kom úr ræktinni. Við erum búin að fá okkur ljósakort, ég fer út til portúgal eftir minna en 2 vikur og ætla sko ekki að vera hvítust! Ég hlakka ekki smá til að fara með öllum stelpunum í hitann og spila fótbolta á hverjum degi:) ....seinni hluti laugardagsins var frekar rólegur fór aðeins út í körfubolta með litlum öpum og borðaði svo rosa gott lambakjöt. Svo horfðum við olli á dukes of hazzard eða eitthvað. Fórum á rúntinn og svo kíkti ég með honum og þorra í afmæli til adda. Fór svo að keyra með árna birni og öðru góðu fólki í smá stund. Fór svo heim með nammi gos og flögur(feita ég) og sofnaði svo yfir sjóngvarpinu....vaknaði þegar olli kom klukkan 4 allur út í reykingarlykt...ojjj. það verður best þegar reykingabannið kemur skemmtistaðina.

Í dag svaf ég enn og aftur mikið. Fór til mömmu og passaði litlu veiku sjöfn. Ákvað svo að fara út að hlaupa, ekki búin að hreyfa mig í 4 daga. Ég er öll að hressast og ætla að fara á æfingu á morgun, hlakka til:) Fór út að labba með hann hóras greyið og lék aðeins við hann. Skellti mér í sund eftir það og svo heima að læra. Ég er komin með viðbjóð af lærdómi.hlakka svo til í lok maí...nó mor læring:D

 

-selma


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.02.2007 14:57:48 / selm

gold lion-yeah yeah yeahs

Halló...langt síðan síðast.

Síðan ég bloggaði seinast eru jólin búin að koma og nýtt ár líka. Keyrði á nýársdag suður með mömmu og systkinum mínum, fórum til kanarí daginn eftir. Það var svoo gott að komast í sól eftir kaldan veturinn heima. Var í viku og kom svo alein heim með guðmund og kolfinnu.það var það versta við ferðina, ég var stressuð að tína þeim og svo voru þau óþekk alla leiðina! En svo byrjaði skólinn á fullu og fótboltinn líka. Ég er að vinna aðeins í pennanum, reyni svo að hafa tíma til að hitta olla og vini mína. Það er ekki mikill tími sem gefst í það...en ég og olli náðum að fara í bíó í gær. Fórum á dreamgirls sem er bara góð. Þurfti ekki að vinna í dag svo að ég er bara búin að vera að læra og svo ætlum við auður og olli í ljós og sund á eftir. Fer svo á æfingu í kvöld og svo beint á þorrablót með vinnunni. Það verður örugglega gaman.svo er það bara vinna og læra um helgina.

 

 



En fór á útskriftarfund um daginn, fékk allveg sona sting í magann þegar ég áttaði mig á því að ég væri að fara að útskrifast eftir rúma 3 mánuði. Það verður gleði....ef að það tekst. Er voða stressuð fyrir lokaverkefnið mitt sem ég er ekki byrjuð á. líka stressuð fyrir fjarnáminu og prófunum.

Ég er svo að fara til portúgal í mars með fótboltanum og aftur í apríl með comenius í skólanum til london og svíþjóðar. Og ég þarf ekkert að stressa mig fyrir að vinna á fullu til að borga.því ég er búin að safna mér fyrir fóboltaferðinni með því að þrífa íbúðir,þjóna,fara í vörutalningu og selja klósettpappír og dagatöl:) hin ferðin er svo alveg frí, þarf ekki einu sinni að borga mat..þetta er náttlega snilld:)

farin í ljós..


» 16 hafa sagt sína skoðun

09.12.2006 02:04:48 / selm

ný vinna jibbíjei....

seinasta færsla var skrifuð í miklu vonleysi eftir stærðfræðiprófið..en svo varð allt bjartara þvíég er búin að fara í myndlistasögupróf og fá 9 og svo var ég í dönsku í gær og gekk bara þokkalega:)

í dag lá ég svo bara í leti og fór svo að vinna við skreytingar í höllinni með stelpunum í fótboltanum. eftir það fór ég að selja klósettpappír. og ef þér vantar þá bara bjallaru í mig;)

ég fór í mat til mömmu og svo með henni út í sveit á tónleika með eivör pálsdóttur. en það tók frekar langan tíma að komast þangað, því að hún móðir mín villtist....fór vitlausum megin í fjörðinn.þar vorum við að keyra á 60 eftir bíl með hestvagn og mamma þorði ekki að fara framúr.en svo hringdum við í ömmu sem sagði okkur að þetta væri nú bara á hrafnagili, kemur. þegar við loksins komum voru tónleikarnir byrjaðir svo við sátum aftast. en það var allt í lagi því salurinn var svo lítill. og það var svo gaman, hún er svo mikið krútt og færeyska er uppáhaldið mitt núna. olli var að monta sig að því að hann væri með númerið hennar í símanum sínum..haha svalur. en já þetta voru svo góðir tónleikar og allt svo yndislegt. mamma keypti tvo diska með henni sem við hlustuðum á í bílnum og svo fórum við í brynju og fengum okkur bragðaref,mmmm.

OG SVO ER ÉG KOMIN MEÐ VINNU:) ég hef minn fyrsta vinnudag á morgun í pennanum á glerártorgi. ekki smá spennt! loksins búin að yfirgefa víkinginn eftir sirka 5 ára vinnu. sem er bara gott, það var reyndar pínu kjánalegt að sitja með tveim mönnum og svara spurningum í mínu fyrsta atvinnuviðtali. en einu sinni er alltaf fyrst;)

en núna sit ég hér heima hjá mömmu og borða núðlur og er bara e-ð að hugsa...hugsa um þennan bæ og hvernig allt sé að verða.

það er alltaf verið að stela dóti úr skólanum, einhverjir náungar labba bara inn og taka myndvarpa og sjónvörp og bara hvað sem er til að eiga fyrir dópi.
litli frændi minn, 10 ára var einn heima með vini sínum um hábjartan dag, kom út úr herberginu sínu og sá unglingsstrák vera að fikta í sjónvarpinu. strákurinn hélt semsagt að það væri enginn heima og ætlaði barasta að stela sjónvarpinu:/
á móti mömmu býr e-ð þvílíkt pakk sem er alltaf með læti á nóttunni. um daginn fann ég hasspípu í garðinum. í garðinum sem litlu systkinin mín og hundurinn minn leika sér!! mér var sko ekki sama.
svo fyrir svolitlu síðan þá lá strákur á gangstéttinni fyrir utan þetta hús.einhver hafði rotað hann og skilið hann bara eftir.8|
Svo meira að segja á virkum kvöldum eru stundum bílar þarna fyrir utan með háværa tónlist og krakkar í kring að drekka og tala hátt saman....og þetta er hverfi með fullt af fjölskyldufólki, á það að þurfa að líða þetta?

æjji ég nenni ekki að pæla meira í þessu..

núna ætla ég að fara að sofa, alein..í engri kremju og með engar hrotur.sakna þess, þó olli verði bara í hrísey í tvær nætur.

hilsen, selma.


» 18 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 16:41:14 / selm

helvítis próf!!!

próf próf próf....ég hata próf.

ég hata að ganga illa í prófum og ég hata þegar ég fer að sofa þegar ég á að vera að læra. og ég hata að vera á seinustu stundu með allt....alltaf!

samt læri ég aldrei neitt á því.


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.11.2006 22:55:51 / selm

hrísey

ég er í hrísey. það er alltaf gott.
ammæli hjá gígju í dag, kökuyfirát!
tvö önnur í dag, hjá lalla og arnrúnu. ákvað að vera bara í hrísey...partypuber.
ég er allveg svakalega vinsæl í þessum ammælum. var í einu slíku hjá henni erlu sætu seinustu helgi. had a very good time:)
er alltaf á leiðinni að setja inn myndir....
olli er með frunsu svo við erum ekki búin að kyssast í nokkra dag...haha frunsi!
er búin að vera að horfa á 3 seríu af oc. reyndar góð.
ein vitlaus stelpa í vma var að leita að hentugri pizzu handa gænmetisætu. bennti á eina og sagði: það er ekkert kjöt á þessari...það var skinka OG pepperóní á henni. henni var nú sagt það og einhver kom með aðra til að gefa gænmetisætunni. þá sagði stelpan: en það eru sveppir á henni. er það ekki kjöt? sjjjitt.
farin að spila síkvens eða horfa á eitthvað.

-selma.
p.s frunsi biður að heilsa;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 00:29:14 / selm

reykjavík

rútuferðin var ágæt, reyndar þurfti að bíða eftir nokkrum sauðum áður en lagt var af stað en það var nú allt í lagi held ég, vona það allavega hehe..horfðum á leiðinlega strákamynd og svo ace ventura sem er svoo mikil snilld.fékk mér kjötsúpu í staðarskála í staðinn fyrir hamborgara. svaf svo bara vel alveg eins og klessa á honum olla það sem eftir var ferðar.fengum okkur devitos pizzu í seinni kvöldmat mmm:)
komum svo í íbúðina hjá dröfn systur olla og bjögvins frænda hans.Þar var partístand fram á nótt en við sváfum samt vært.

Á laugardegi vöknuðum við og fórum útí hafnarfjörð því olli ætlaði að kaupa sér jakkaföt.gerðum tilraun til að finna herra hafnarfjörð en það tókst ekki. þá skruppum við í kringluna, í hagkaup að kaupa mat og smá skó leiðangur.

svo var það framhaldsskólamótið mikla. við vorum bara 7, með engan varamann en stóðum okkur samt bara vel fannst mér. unnum fyrri leikinn 2-1 en hinn fór jafntefli 2-2. liðið sem við gerðum jafntefli við komst svo áfram, sem var pínu fúllt.
svo var það bara sturta og brunað beint í kringluna. þar keypti ég úlpu og boli. svo var kvöldmatur á serrano.
Þaðan var haldið aftur í íbúðina að sjæna sig aðeins og skipta um föt því við vorum að fara á footloose. Hún Dunda yndislega var svo góð að gefa okkur frímiða, hún er nebblega aðstoðarleikstjórinn. það var ekki smá gaman og rosalega flott sýning. svo varð ég skotin í höllu þanna aðalgellunni. hún syngur svo vel og dansar svo vel og leikur svo vel og er svo sæt og flott og mjó að þorvaldur davíð var bara eins og kúkur meðað við hana. svo var það náttlega pizza king í seinni kvöldmat, sem er eins og devitos. svo var farið í íbúðina að horfa á tv og kúra. Það var ekki smá næs að vera með alla íbúðina fyrir okkur og líka bíl frænda hans olla því hún var í hrísey og hann í sumarbústað.

Svo á sunnudeginum vöknuðum við snemma á fórum í sund í laugardalslauginni, og fengum okkur franska pylsu,namm. gott að byrja daginn þannig:) svo var það kringlan og smáralind. og við versluðum slatta. það er svo gaman að eyða á meðan maður er að því en eftir á þegar maður áttar sig á hvað mikill peningur fór þá fær maður pínu samviskubit:S en ég fann fann mér svartar levi's buxur og klikkaða rauða skó og margt fleira og olli fékk sér tvenn pör af skóm, sem voru geggjaðir.

eftir búðaferðina fórum við í íbúðina að ganga frá draslinu okkar og svo koma ragnhildur mín góða og keyrði okkur á flugvöllinn. þar biðum við í 2 tíma eftir hoppi...komumst á endanum heim:D

Það koma kannski myndir bráðum, ef ég nenni að láta þær inn.

selma kveður..


» 10 hafa sagt sína skoðun

25.10.2006 20:34:36 / selm

til-þrif

Í tilefni nýs útlits síðunnar ákvað ég að blogga.
Helgin mín var svoo ljúf. Fór útí hrísey með olla mínum. Við gerðum ekkert annað en að slappa af og hafa það gott. Svaf í sona 20 klukkutíma sem er best. Horfði á nýtt líf og stellu. Það var gaman. Knúsaði gígju krútt og borðaði góða eplaköku. Fór í heimsókn til ömmu og borðaði fullt af nammi.
Svo á sunnudaginn þá bauð olli mér út að borða. Þá vorum við búin að vera saman í eitt ár:)
Ég er komin með smá vinnu. Er að þrífa hjá vinkonu mömmu. Hún er æði, bauð mér í mat og keyrði mig svo heim. Svo stuttu seinna þá hringdi hún í mig og sagðist vera svo ánægð með mig að hún ætlar að hækka launin. Ekki amarlegt að fá kauphækkun á fyrsta degi;) en ég verð semsagt að þrífa hjá henni 1 sinni í viku..og ef þig lesandi góður, vantar e-n til að þrífa húsið þitt hringdu þá í mig. Ódýr og góð þrif, haha auglýsa á blogginu svöl jájá.
Bauð olla í ljós í gær og svo á mýrina. Myndin var mjög góð en eva(silvía nótt) fór smá í taugarnar á mér. röddin hennar var allt of silvíunótt leg. svo löbbuðum við heim í dimmu og snjókomu og tókum nokkrar snjómyndir. svo fórum við inn í hlýjuna og borðuðum kleinur og möffins. Mamma hans var nebblega svo góð að koma með fullan poka handa okkur;)
 Næstu helgi er ég að fara suður að keppa í framhaldskólamótinu í fótbolta. Það verður stuð þó við séum örugglega ekki að fara að gera stórgóða hluti þarna. Við verðum frekar fáar og allar búnar að vera í fríi frá boltanum, en hann byrjar aftur 14. nóv:). Ég ætla að taka hann olla með og við ætlum að fara að versla. Jólaföt á hann og fína skó á mig og e-ð sona skemmtó. Svo förum við kannski á footloose. Svo hitti ég vonandi hana lillu mína:*
Ég veit ekkert hvort að fólk skoði bloggið mitt lengur, er ekkert búin að skrifa á það í háa herrans tíð. En allavega þá uuuu veit ég ekki hvað ég á að segja meira svo ég kveð í bili með bros í hjarta. haha já einmitt.


» 9 hafa sagt sína skoðun

31.07.2006 02:46:03 / selm

kristalnótt - maus

Góð helgi á enda..ég var búin snemma í vinnunni á föstudaginn og það var geðveikt veður. Við olli kíktum í fargo og hann keypti sér skó og peysu handa mér:) svo löbbuðum við í brynju í góða veðrinu og alla leiðina aftur í bæinn rökræddum við í hvaða átt hrísey væri frá staðnum sem við stóðum á. Spennandi! En olli benti í áttina að kaldbak og hélt því fram að þar ætti hann heima.8|

Ég er ein heima núna því liðið fór í húsafell í viku..þannig að þegar við komum heim var enginn matur. Mamma var ekki heldur heima þannig að við þurftum að redda okkur. Það var ekkert til í ísskápnum, ekki einu sinni mjólk..bara súrmjólk. En ég fann pizzabotnsduft í skápnum þannig að við byrjuðum að gera pizzu. En þegar deigið var tilbúið kom í ljós að það var auðvita ekkert til á pizzuna! Þannig að ég þurfti að fá lánaða pizzasósu hjá nágrönnunum, en við vorum það heppin að eiga ost. Þetta var allveg dýrindis margarita hjá okkur..en ég var að fara á æfingu svo ég borðaði pizzuna á leiðinni. Svo seinna um kvöldið fórum við útí öxnadal á sigur rósar tónleikana. Það var yndislegt. Hápunkturinn var þegar hoppípolla kom..svo var líka gaman að hitta lillu. Mamma var á tónleikunum með sjöfn litlu og við pössuðum hana meðan hún seldi húfur. Eftir tónleikana fórum við mamma og fengum okkur sveittan búkollubát á meðan olli og sjöfn hrutu í aftursætinu.

Ég vaknaði snemma á laugardeginum og fór í vinnu klukkan 8. Svo fór ég á æfingu og það taco hjá mömmu um kvöldið. Eftir matinn lágum við uppí sófa og átum fullt af nammi, algjörir haugar.

Svo kom sunnudagurinn, ekki smá gott að vera ekki að fara að vinna snemma. Ætlaði að hafa það voða næs og sofa út en vaknaði samt klukkan 10 sem er mjög ólíkt mér. Og svo setti ég í nokkrar þvottavélar og braut saman öll fötin í herberginu sem er ennþá ólíkara mér. Ég steikti svo egg sem er líka pínu ólíkt mér því eldhúsið er ekki allveg minn staður. Við olli kúrðum og horfðum á fótbolta og e-ð til svona 3 og fórum þá í búðina að kaupa e-ð að spise. Fyrir valinu urðu kaffiterta, súkkulaðisnúður, maryland, draumur og rís:S

Svo fór ég í vinnuna og olli kom í kvöldmatnum mínum og við fengum okkur sveittan hamborgara. Eftir vinnu kom svo heiða að sækja mig og við fórum á pirates of Caribbean og hún var lööng. En samt allveg góð. Og núna sit ég í tölvunni og er að reyna að mana mig uppí að fara að sofa. Alein í húsinu og pínu myrkfælin.:$

En það verður gott að sofa út á morgun. Skella sér svo í sund og vinna klukkan 2. þetta verður örugglega góður dagur:)

 

 



-selma


» 22 hafa sagt sína skoðun

12.07.2006 19:58:55 / selm

bloggur silvúple

er í vinnunni...búið að vera crazy. fullt af heyrnalausu fólki, fær mann til að hugsa hvað maður er heppin að heyra. get ekki ímyndað mér að geta ekki hlustað á tónlist og talað almennilega við aðra og ég myndi heldur aldrei getað vaknað á réttum tíma,hehe. en já ég er nýbúin að borða sveitta tikktakk pizzu..sé pínu eftir því:S hefði átt að borða gulræturnar og abmjólkina sem bíður inn í ísskáp eftir að ég borði sig. fór út í hrísey í gær..við olli fórum í fjöruferð og misstum okkur á myndavélinni, koma kannski myndir inn ef hann nennir að láta á myndasíðuna mína;) svo fékk ég að sofa lengi því ég byrjaði að vinna 2 í dag. við gígja kúrðum saman upp til sona hálf 11. ætlaði að fara heim 11, hljóp niðrá bryggju í mígandi rigningu...rétt náði ferjunni enn svo fékk ég ekkert far svo það var fýluferð. fór þá bara kl 1 í staðinn og fékk far með krúttlegum hjónum sem vissu meira um sjálfa mig en ég..ég á víst marga ættingja á grundarfirði, vissi það ekki:) ég er í viku pásu í fótboltanum og ætla svo að sjá til með framhaldið, gengur ekki að vera alltaf meidd:( en ég verð bara dugleg í sjúkraþjálfun og sundi á meðan. er að vinna frekar mikið alla þessa viku.langar svo að gera e-ð skemmtilegt en það er víst ekki í boði. bömmer...nú þarf ég að fara að gera búðina fína eftir brjáluðu útlendingana sem eru búin að rústa öllu8|

mér langar að:
-fara í sund
-hætta í vinnunni minni
-læra táknmál
-fara til sólarlanda
-verða brún
-fá stálslegna ökkla
-knúsa sjöfn

selma:!:


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.07.2006 01:56:52 / selm

titill illit llitit ittill illitt

ákvað að skella inn bloggi því ég nenni ekki að fara að sofa. ég veit að það er ekki til latari bloggari en ég, en mér er allveg sama.
ollinn minn er kominn heim..ég hélt semsagt að hann myndi koma heim í dag en hann kom óvænt á þriðjudaginn. það var ekki smá skrítið og ég fattaði ekki neitt..mamma hans sótti mig í vinnuna kl 10 um kvöldið og bað mig að koma í heimsókn til mömmu sinnar... svo labba ég upp stigann og þar stendur hann. ég lít niður eins og ekkert sé, lít aftur upp og gef frá mér furðulegt hljóð sem ég get ekki lýst vel..það var e-ð beee og svo segi ég "enn gaman að sjá þig" eins og ég sé bara að hitta gamla frænku eða e-ð.veit ekki allveg hvað það var.
en ekki smá gott að hann sé komin, ég var búin að bíða í 5 mánuði eftir þessum degi, en ég var samt svo ekki tilbúin að hitta hann..ég var að klára langan vinnudag sveitt og ógeðsleg með hárið í allar áttir og svo var markmiðið var að laga til í herberginu áður en hann kæmi..hmm en er ekki enn búin að því. leiðinlegt að vera að vinna svona mikið og vera alltaf á æfingum, því þá get ég hitt hann svo lítið..svo er hann að vinna í hrísey svo ég get bara hitt hann um helgar þegar ég er ekki að keppa eða vinna og ef ég kem um kvöld til hríseyjar og fer í ferju kl 7 um morguninn á virkum degi. en við ætlum að reyna að fara í smá útilegu á laugardaginn..vona að það gangi upp:) og svo vonandi til útlanda í byrjun ágúst, ég hlakka svo til þó það sé ekki einusinni ákveðið hvert við förum.
fór á kaffihús með þóru í kvöld, ekki búin að hitta hana leeengi og það var gott að taka svona léttan trúnóspjallara..svo kom hún arnrún sem ég var heldur ekki búin að sjá mjög lengi, og það var gaman að hitta hana líka. er núna að deyja í hausnum eftir tvo tvöfalda latte sem ég einhverra hluta vegna þambaði..ööö ég þarf að æla!kannski er þetta líka útaf reykingalykt..hildur þóra strompastrumpur! kíkti líka á auði mína sem var að vinna á bautanum..svo var æfing fyrr í kvöld og ég náttla að drepast í ökklunum eins og venjulega. ég er farin að halda að það sé bölvun á mér..ökklabölvun.
ætla að koma með smá búðarsögur.
um daginn kom kona í búðina og spurði hvort ég ætti  bol í extra medium og var að meina það..mér fannst það skondið:)
í gær komu 2 söngvarar í búðina..
gæjinn úr sóldögg kom, labbaði allveg upp að mér og tók í hendina á mér og horfði í augun á mér og sagði "sæl, ég er að leita mér að flíspeysu"..fannst það pínu vírd.
svo kom torfi ólafs, hetjan mín og binnu. hann selur okkur geisladiska í búðina.hann bað mig að hringja í sigga og segja honum að torfi væri kominn. ég hringdi geðveikt æst e-ð og sagði sigga með aðdáunartón, "torfi ólafsson er hérna". fattaði ekki að sonur hans var fyrir aftan mig, hann hélt örugglega að ég væri vangefin..skánaði heldur ekki þegar ég spurði torfa hvort hann gæti ekki sent okkur diskinn hans, í draumi sérhvers manns, með eðallaginu, nú skal leika á langspilið veika. en diskurinn var því miður uppseldur.
svo í dag kom mamma hennar unnar birnu og keypti gráa fingravettlinga með kindum á...pottþétt handa Júbí,haha.

 ég ætla setja markmiðin mín hérna á netið..(þá er kannski pínu líklegra að ég standi við þau)
-laga til í herberginu mínu svo pabbi fari ekki á taugum.
-fara að borða hollan mat og drekka mikið vatn, er dottin í þann pakka að borða bara í hádeginu og þá e-ð rosa sveitt..eins og burger eða bát eða subway. gengur ekki!
-vera dugleg að mæta í sjúkraþjálfun og synda til að styrkja ökklana.
-mæta á réttum tíma í vinnuna og reyna að vera jákvæðari:)
-hætta að borða lakkrísmola í vinnunni.
-heyra oftar í vinum mínum.auður lalli harpa erla lilla hekla hildur arnrún heiða:(
-fara í heimsókn til ömmu og vera góð og lita á henni augabrúnirnar og sonna.
-hei já og drullast til að fara að sofa snemma! kannski það væri gáfulegt.
-eitt í viðbót..vera dugleg að blogga;)
-og líka tala dönsku við dani sem koma í búðina, ég snakkeðe dansk í allan dag og var geðveikt góð fannst mér,hehe..

hilsen selma.


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 21:07:59 / selm

untitled

Föstudagurinn var góður. Ég vaknaði klukkan 6 við það að e-r var að berja á gluggann hjá mér…ég hugsaði með mér hver í ansko**** væri að vekja mig svona snemma. Öskraði “hvað” án þess að líta út. Það var hlegið. Ég dróg upp rimlagardínurnar og fannst ég  sjá ofsjónir. Auður fyrir utan. Nei mig er að dreyma, hún er á spáni. Ætlaði að fara að sofa aftur þegar kallað var Selma Selma…þá var þetta rostungurinn minn kominn heim:D hún kom og kúrði með mér í pínu stund, við sjölluðum á fullu en ég var samt hálf sofandi. Svo þegar ég fór í vinnuna þá mundi ég aftur eftir þessu, og var ekki viss hvort að þetta væri satt. Reyndi að hringja í hana en það svaraði ekki.ohh þetta var þá bara en nein ímyndunin í mér…en svo talaði ég við hana seinna um daginn og fékk þetta á hreint. Hún var komin heim í alvörunni.

Ég fór um kvöldið að vinna á vikudegi með fótboltanum. Vorum að hringja í folk og bjóða þeim að verða áskrifendur..lenti á einum góðum jóni sem var heldur óhress því hann var búinn  að borga fyrir að láta sölufólk ekki hringja í sig. ég var með gamla símaskrá svo ég vissi það náttla ekki. Hann var farinn að skamma mig á fullu og ég sagði bara afsakaðu ónæðið aftur og aftur og hann sagðist sko ætla að tala við yfirmennina á vikudegi og láta þá heyra það. Eftir samtalið hringdi ég í næsta jón(eða ég hélt það)..vildi svo vel til að ég hafði gleymt að merkja við skapvonda og bitra jón svo ég hringdi aftur í hann:S tók sleikjuröddina á þetta, góðann daginn ég heiti Selma og era ð hringja frá vikudegi…náði ekki lengra því maðurinn gjörsamlega tjúllaðist og sagði “var ég ekki búinn að segja þér að láta mig vera!!!” ég bara úbbs og hann öskraði e-ð í símann sem ég náði ekki allveg því ég hló svo mikið….frekar vandræðalegt það. Þess má geta að ég seldi ekki eina einustu áskrift á vikudegi…kannski eru jónar og jónur bara svona nísk, eða er það ég sem er svona lélegur sölumaður:O varla,hehe.

Eftir ósölumennskuna fór ég til hennar hildar sem var að halda upp á 18 ára afmælið sitt. Þar voru rifjaðir upp gamlar stundir og mikið hlegið. Gaman gaman og borðað takkó. Svo komu auður og ívar að sækja mig og við fórum út að borða í tilefni heimkomu auðar cúrrú;) við fórum ásamt hörpu erlu árna og steina…það var sem sagt dinner númer 2 hjá mér. Fórum á greifann og mikið var gantast…og látið öllum illum látum(ekki alveg samt) ívar fékk risa pepperoní í matnum sínum og ég og erla héldum að þetta væri af hundi. Ég fékk mér pizzu með skrítnu nafni…og hló pínu af því þegar þjónninn spurði hver væri með pizzu nautabanans…það var ég, nautabaninn. Svo kíktum við á kaffi karó og svo hélt ég heim að tala við olla:D

Ég fór snemma í vinnuna á laugardeginum og var til 5. fór þá til mömmu og svo til hörpu. Þar voru allir saman komnir frá deginum áður –ívar, + villinn hennar erlu. Horfðum á júró og pönntuðum pizzur. Svo var það kennsla í spænskum dönsum að hætti auðar. Eftir það fórum við í actionary. Erla var ekki smá æst og það var skemmtilegast að fylgjast með henni fagna,hahaha. Svo fóru allir að taka sig til fyrir sjallann nema ég:( það má víst ekki fara á skemmtistaði 4 dögum fyrir leik. ég fór bara í fýlu því mig langaði svo með. Fór aftur til mömmu og þar voru siggi og fleiri sem voru með honum í frönsku í vetur sem hann hafði boðið heim í mat. Það var gaman að hlusta á skrítnar og mis ógeðslegar sögur hjá þeim. Einn strákurinn dó í sófanum og einn annar krotaði hann allan í framan:haha:

Svo fór ég í smá skutl með önnu og labbaði svo heim með henni heiðu litlu sem stækkar eftir 2 daga:)

Æfing á sunnudags morgni, ekki beint mitt uppáhald en það var svosem ágætt. Svo heim að spise kínamat,mmm og svo vinna.

Eftir mjög stuttan vinnudag fór ég á þór-stjarnan á akureyrarvelli til að vinna í sjoppunni. Það var vægast sagt kalt og örugglega fyrsti leikurinn sem ég hef horft á í snjókomu.

Pabbi var búinn að tuða í mér að laga til í herberginu mínu í marga daga..og ég varð loksins að ósk hans…það var alls ekki slæmt því undir öllu draslinu fann fimmara:) ég var glöð því þá átti ég penge til að komast í bíó. Fór á da vinci myndina með auði ívari og hörpu…góð mynd sko, núna fer ég kannski að lesa bókina sem er búin að standa uppí hillu í hálft ár…hef aldrei nennt að lesa meira en 2 blaðsíður.

Í morgun kom ég of seint í vinnuna, sem mér finnst ömurlegt því ég er að reyna mitt besta að vera stundvís..en það kom svoo svalur gamall maður í búðina í dag, um sona sjötugt. Hann var í leðurbuxum með keðju og greiðu í rassvasanum;) geri aðrir betur!!

Æfing áðan..ég hata teyp og ökkla. Ekkert leiðinlegra. En svo er leikur á móti val á morgun í rvk...ég er að reyna að hugsa jákvætt og segja sjálfri mér að getum allveg unnið þær..en það virkar ekki allveg nógu vel:S en við allavega gerum okkar besta..

Ég er að fara að sofa svo ég geti farið fersk í sund og sjúkraþjálfun í fyrramálið…og svo er það fimm tímar í rútu og svo aftur um kvöldið. Uppáhaldið mitt:)

Svo kemur ollinn minn eftir 37 daga…hlakka svo til:D

 

 



-nautabaninn.


» 17 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 01:14:30 / selm

dr. phil er dáinn:(

Ferðin suður var allt í lagi. Það var ekki mikið að gera í vinnunni og ég sá engan rónabar hliðin á sem var bara mjög gott. Ég var mikið í því að virða borgarlífið á ingólfstorgi fyrir mér þegar búin var sem allra dauðust. Ég sá 3 dvega á 2 dögum…ég held að þeir séu skemmtilegir. Svo tók ég mikið eftir því að það voru allir hlaupandi. Mest voru það jakkafatamenn en svo var líka fullt af öðruvísi fólki á hlaupum… Svo fór ég að ímynda mér fólk að hlaupa í bænum á akureyri. Fólkið þar gerir ekki svoleiðis. Það er nebblega of kúl. Labbar bara yfirvegað í vinnuna þó að klukkan sé orðin 10 mínútur yfir.
Svo uppgötvaði ég sudoku. Sá fólk stundum í soleiðis og fannst það svo bjánalegt, að setja tölur inní kassa. En svo var ég að fletta gamalli birtu og sá sona dæmi. Las leikreglurnar…svo ætlaði ég að gera bara pínupons til að sjá hvort ég gæti þetta. Ég festist svo yfir þessu. En þetta er allgjörlega leikur frá helvíti. Ég var í þessu í marga klukkutíma en gat ekki einusinni klárað hálfdrættinginn..alltaf þegar ég var farin að segja jibbí þá fann ég villu. Það endaði með því að ég var orðin kraumandi og krassaði yfir allt hard workið mitt og skrifaði ljót orð í kring til að losna við pirrið.. ég held að japönum og banönum finnist ekkert gaman í þessum leik, þau bara festast. Ég allavega gef skít í þetta núna…en hér getur þú prófað leikinn:
http://www.websudoku.com/
en þú verður að vera þolinmóður í þessu, það var klikkið hjá mér.
aftur að búðinni..það kom kona sem var að leita að inniskóm handa mömmu sinni. Já hún notar númer 46!!!! Því miður voru ekki til neinir þæfðir skór á mömmuna.
svo eftir vinnu einn daginn labbaði ég til dundu sem var soldið langt frá. Kom að kirkjugarði sem ég labbaði líka framhjá um morguninn og fannsteitthvað voða spúkí. Fór inn og skoðaði fullt af fallegum legsteinum og velti fyrir mér nöfnunum á fólkinu. En svo kom ég að einu leiði og bara sprakk úr hlátri alein í kirkjugarði..vírd. en á legsteininum stóð DR. PHIL og svo fyrir neðan hannes þorsteinsson þjóðskjalavörður og frúin hans. Afhverju samt???
við kepptum á laugardaginn og unnum ÍR 4-1. og svo ferming í gær, marsipanið var best.
flaug heim í morgun, vaknaði 6.15 til einskis því dæminu seinkaði..var ekki komin heim fyrr en 9.30. siggi var að koma frá parís…keypti 2 boli og derhúfu handa uppáhalds fósturdótturinni…svo bíður mín fullt af nammi og armband í mömmuhúsi skilst mér. góður kallinn:)
fór í sund í dag með sætu apana. Lá í litlu barnalauginni með guðmundi og þar voru hjón um fertugt með 2 börn. Svo fóru börnin þeirra…og allt í einu fór kallinn að sleikja eyrað á konunni og það ekkert lítið!! í barnalaug! þetta var svo ógeðslegt að ég fór með guðmund í annan pott og leyfði  þessu fólki bara að vera í friði. Ojj mér er sko óglatt að hugsa um þetta…hélt samt fyrst að ég væri að sjá ofsjónir en því miður var það ekki.. ofsjónir og rugl er frekar vinsælt þessa dagana.

Ollinn minn kemur eftir 65 daga…fékk æðipæði póst frá honum í dag með krúttbréfi og myndum og diski. Takk sæti:** segi það bara núna því ég get ekki talað við hann fyrr en eftir 5 daga því hann er einhversstaðar í óbyggðum eða eyðimörk ástralíu þar sem er ekkert símasamband..
 luuuva þig olli, hahaha:D

 -selma sigurðardóttir ...róleg á því að vera formleg!


» 23 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4